Alexandra  I  Ferilskrá  I  Umfjöllun / Gagnrýni  I FramtíðarplönMyndir  I  CD/DVD 

 

Framtíðarplön:

Á þessu ári, 2009 eru eftirfarandi verkefni á teikniborðinu:

 


Söngskóli Alexöndru hefur verið í samstarfi við Tónlistarskóla Austur og Vestur Húnavatnssýslu um verkefni sem heitir "Draumaraddir Norðursins". Í því tilefni var stofnaður Stúlknakór Norðurlands vestra í haust og hefur hann verið að æfa í hverri viku fyrir fjóra tónleika sem verða um Páskana á Norðurlandi vestra. Rúmlega 60 stúlkur, 10 til 16 ára eru í kórnum. Alexandra er listrænn stjórnandi, Elínborg Sigurgeirsdóttir undirleikari og söngkennari á Hvammstanga, Þórhallur Barðason söngkennari á Blönduósi og Hugrún Sif Hallgrímsdóttir söngkennari á Skagaströnd. Auk þess að æfa og taka þátt í tónleikum þá verður eitt lag "Draumaraddir Norðursins" tekið upp í hljóðveri og á myndband.


Gefinn verður út geisladiskur "Rússneskar perlur" en á honum verður að finna valið úrval laga eftir Sergei Rachmaninov. Undirleikar á diskinum er Jónas Ingimundarson. Upptökur hafa farið fram í Salnum á síðasta ári og er diskurinn væntanlegur með vorinu 2009. Til að fylgja eftir útgáfunni verða nokkrir tónleikar víðsvegar um landið.


Næsta haust ætlar Alexandra að setja upp tvær mónóóperur og sýna víðs vegar um landið.


Að lokum er fyrirhugað að gefa út fyrir næstu jól geisladisk með fjölbreyttum jólalögum frá mismunandi löndum og á ýmsum tungumálum.

 

DreamVoices ehf • Austurgötu 11 • 565 Hofsósi • dreamvoices@dreamvoices.is • S: 894-5254 / 898-6364
© 2007 Uppsetning og hönnun Hýsir.is